Um Bjarma

bjarmar

Bjarmi er tímarit sem fjallar um kristna trú og kemur út fjórum sinnum á ári, 48 bls. í senn. Í blaðinu birtast margvíslegar greinar um kristna trú og erindi hennar við okkur í samtímanum. Þar kennir margra grasa og má nefna greinar sem eru til fróðleiks og fræðslu, til uppbyggingar og hvatningar í þjónustunni í Guðs ríki, hugvekjur, viðtöl, fréttir af málum kristninnar innan lands og utan, tónlistar- og bókakynningar og fleira. Markmiðið með útgáfu blaðsins er að benda á gildi kristinnar trúar og Biblíunnar í þeim heimi sem við lifum í. Blaðið er selt í áskrift og kostar ársáskriftin 3.900 kr fyrir árið 2009. Ef áskriftin er greidd með greiðslukorti eða beingreiðslu er árgjaldið aðeins kr. 3.600. Áskrift til útlanda kostar kr. 4.800.
Bjarmi er gefinn út af Salti ehf. í samstarfi við Sambandi íslenskra kristniboðsfélaga og hefur komið út frá árinu 1907.

Leita


Greinar úr Bjarma: