Annað tölubalð ársins er nú komið út. Þar er viðtal við Anne Marie Reinholdtsen, sem tekið var nokkrum dögum fyrir andlát hennar, viðtal við Gilla í Gilla grilli, grein um Valgeir Skagfjörð og séra Magnús Runólfsson, önnur um það að eiga sitt fyrsta barn, frásaga af tónleikaferð í Flórída, hugsanir og viðbrögð ...vegna nýrra hjúskaparlaga, nokkrir brandarar, umfjöllun um tvær kvikmyndir, viðbrögð við Rannsóknarskýrslunni frægu, ferðasaga frá Eþíópíu og myndir frá Kristsdegi í Sviss og samkirkjulegri bænastund á 17. júní.
Þeir sem ekki eru áskrifendur nú þegar en hafa áhuga á því að verða það er bent á að hafa samband við afgreiðslu blaðsins sem er á skrifstofu SÍK, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík. Síminn er 533 4900. Eins má senda tölvupóst á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpóstabottum, þú þarft að kveikja á JavaScript til að sjá það .
Einnig er hægt að kaupa stök blöð á Basarnum - nytjamarkaði Kristniboðssambansins í Austurveri, Háaleitisbraut 68.